Fotbolti.net
Tíu ára vegferð að Bestu deildinni - „Mun alltaf sitja eftir hjá mér"
Kvennaboltinn

03.09.26

Tíu ára vegferð að Bestu deildinni - „Mun alltaf sitja eftir hjá mér"

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Það eru aðeins tíu ár síðan meistaraflokkur kvenna hjá Gróttu var stofnaður. Nú er liðið komið í Bestu deildina í fyrsta sinn.

Á laugardaginn síðasta tryggði Grótta sér sigur í Lengjudeildinni og tveir leikir eftir. Fyrir félag sem þurfti á sínum tíma að safna saman leikmönnum „í kringum vinkonur sem áttu vinkonur“ er árangurinn eftirtektarverður.

Leiðin hefur ekki alltaf verið bein. Grótta hefur fallið, komið aftur upp, tapað stórum leikjum þegar mikið var undir og misst lykilleikmenn. En grunnurinn hefur haldið og tíu árum eftir að verkefnið fór af stað er Grótta komið á stærsta sviðið í íslenska boltanum.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.