03.09.26 - 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Treyjudagurinn er á morgun - Mættu í treyju


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun, 4. september, er Treyjudagurinn haldinn í fyrsta skiptið á Íslandi. Eins og aðdáendur íslenska boltans sáu í síðustu umferð klæddust leikmenn sínum uppáhaldstreyjum þegar þeir mættu til leiks.
Allir eru hvattir til að mæta í treyju á morgun, sama hvert það er. Með því er sýnd samstaða með börnum sem glíma við krabbamein.
Treyjudagur.is
Allir eru hvattir til að mæta í treyju á morgun, sama hvert það er. Með því er sýnd samstaða með börnum sem glíma við krabbamein.
Treyjudagur.is

TENGT EFNI
Tíu eftirtektaverðustu treyjurnar á treyjudögum
Hvað er Treyjudagurinn?
Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.
Í ár er Treyjudagurinn haldinn í fyrsta skiptið á Íslandi. Allir eru hvattir til að mæta í treyju föstudaginn 4. september, hvort sem það er í vinnu, skóla eða hvar sem er. Takið mynd/ hópmynd og deilið á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #treyjudagurinn.
Við erum öll í þessu saman.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - J.L.
