Fotbolti.net
03.09.26 - 21:19
Ívan Guðjón Baldursson

Viktor Bjarki fékk tækifæri - Hearts vann höfuðborgarslaginn

Viktor Bjarki fékk tækifæri - Hearts vann höfuðborgarslaginn
Canon

Mynd: EPA

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu þar sem Viktor Bjarki Daðason kom inn af bekknum í sigri FCK. Rúnar Alex Rúnarsson var ónotaður varamaður.
Kaupmannahöfn tók á móti FC Nordsjælland í stórleik í danska boltanum og komst í tveggja marka forystu á fyrsta hálftíma leiksins.

Viktor Bjarki kom inn af bekknum á 35. mínútu fyrir Andreas Cornelius sem þurfti að fara meiddur af velli. FCK var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en það ríkti jafnræði á vellinum eftir leikhlé og tókst hvorugu liði að bæta marki við leikinn, svo lokatölur urðu 2-0. FCK er á toppi deildarinnar með 15 stig eftir 6 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Nordsjælland.

Viktor Bjarki er aðeins 18 ára gamall og fékk mikinn spiltíma á síðustu leiktíð þrátt fyrir ungan aldur. Hann er að berjast við Danann þaulreynda Cornelius um sæti í byrjunarliðinu.

Brynjar Ingi Bjarnason byrjaði þá í liði Sönderjyske sem lagði Thisted FC að velli í danska bikarnum. Brynjar og félagar heimsækja Adam Inga Benediktsson og félaga hans í AB í 32-liða úrslitum.

Tómas Bent Magnússon kom inn af bekknum í sigri Hearts í Edinborgarslagnum gegn Hibernian í efstu deild í Skotlandi. Spútnik liðið frá því á síðustu leiktíð er með 9 stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.

Á Ítalíu var AC Renate slegið úr leik í Serie C bikarnum en Óttar Magnús Karlsson er lykilmaður í liði Renate.

Patrik Sigurður Gunnarsson var þá á bekknum í 1-0 tapi Kortrijk gegn Anderlecht í efstu deild í Belgíu og er liðið án stiga eftir fjórar umferðir.

Að lokum var Sverrir Ingi Ingason, sem hefur verið að glíma við meiðsli, ekki í hóp hjá Panathinaikos í sigri gegn Niki Volos í gríska bikarnum.

FCK 2 - 0 Nordsjælland

Thisted 0 - 2 Sonderjyske

Hibernian 1 - 3 Hearts

Cittadella 4 - 1 Renate

Anderlecht 1 - 0 Kortrijk

Panathinaikos 1 - 0 Niki Volos
Viktor Bjarki fékk tækifæri - Hearts vann höfuðborgarslaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki fékk tækifæri - Hearts vann höfuðborgarslaginn
Canon

Mynd: Hearts

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.