03.11.26 - 18:19
Brynjar Ingi Erluson
Cannavaro íhugar að hætta eftir að Asíubikarnum var frestað

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski þjálfarinn Fabio Cannavaro íhugar alvarlega að segja starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Úsbekistan eftir að Asíubikarnum var frestað um eitt ár.

TENGT EFNI
Asíubikarnum frestað - Hefur mikil áhrif á ensku úrvalsdeildina
Mótið átti að fara fram í Sádi-Arabíu í janúar og febrúar á næsta ári, en hefur nú verið frestað til lok árs 2027 og byrjun 2028 vegna árása sem gerðar voru á landið á dögunum.
Þrettán manns létust í árásum Houtha-hreyfingarinnar á flugvöllinn í Riyadh og meira en 300 særðust.
Fjölmörgum íþróttaviðburðum hefur verið aflýst í Sádi-Arabíu að undanförnu og mikil óvissa ríkir nú í landinu.
Leikjum vikunnar í úrvalsdeildinni í Sádi-Arabíu hefur einnig verið frestað í kjölfar tíðindanna af Asíubikarnum.
Samkvæmt Fabrizio Romano íhugar Cannavaro, sem tók við landsliði Úsbekistan á síðasta ári, að láta af störfum vegna breytinganna.
Frestun mótsins mun einnig hafa áhrif á stórar deildir í Evrópu, enda þurfa fjölmargir leikmenn að yfirgefa félagslið sín á miðju tímabili til að taka þátt í Asíubikarnum í lok næsta árs.

???????????? Fabio Cannavaro could decide to leave Uzbekistan national team head coach job.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 3, 2026
It’s a possibility under consideration following the decision to re-schedule the Asian Cup. https://t.co/lYTfHDwR0F