03.11.26 - 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Gæti fengið allt að tólf leikja bann

Jesus Owono

Mynd: EPA

Jesus de Miguel lést í morgun

Mynd: CD Tenerife

Jesus Owono

Mynd: EPA
Jesus Owono, markvörður Andorra, gæti átt yfir höfði sér allt að tólf leikja bann eftir að hafa lent í árekstri við spænska framherjann Jesus De Miguel, sem lést í kjölfarið, í leik Andorra og Tenerife í B-deildinni í gær.

TENGT EFNI
Gríðarleg sorg á Tenerife - „Lífið getur stundum slegið mann harkalega í andlitið“
Owono fór í stórhættulegt úthlaup undir lok leiksins og kom af fullum krafti út á móti De Miguel, sem sá markvörðinn ekki koma.
Markvörðurinn fór með hnéð á undan sér og hæfði De Miguel af miklu afli í brjóstið. De Miguel lá sárkvalinn á vellinum áður en hann fór í hjartastopp, en talið er að endurlífgunartilraunir hafi staðið yfir í meira en tíu mínútur áður en hann var fluttur í skyndi á sjúkrahús.
Ástand hans var sagt stöðugt skömmu eftir leikinn, en heilsu hans hrakaði hratt snemma í morgun og var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar.
Owono hefur síðan orðið fyrir miklu aðkasti á samfélagsmiðlum, þar sem honum hefur meðal annars verið hótað og hann kallaður morðingi. Áreitið varð til þess að hann lokaði reikningum sínum á samfélagsmiðlum.
Kallað hefur verið eftir þungri refsingu yfir Owono og jafnvel fangelsisdómi, en samkvæmt reglum fótboltasambandsins gæti hann átt yfir höfði sér allt að tólf leikja bann.
Ef aganefnd sambandsins beitir 102. grein reglugerðarinnar og metur atvikið sem ofbeldisfulla hegðun gagnvart mótherja gæti Owono fengið allt frá fjögurra til tólf leikja bann.
Það er þó erfitt að ímynda sér hversu þungbært það verður fyrir Owono að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir þennan skelfilega harmleik.
Owono er 25 ára gamall og lék með Andorra á láni á síðustu leiktíð áður en félagið gerði félagaskiptin varanleg í ágúst. Hann á að baki 44 A-landsleiki fyrir Miðbaugs-Gíneu.