03.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Munuð sjá hlið á mér sem þið hafið aldrei séð"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Enski kantmaðurinn Anthony Gordon er að njóta lífsins hjá Barcelona. Hann er kominn með 3 mörk og 5 stoðsendingar í 13 leikjum og er spenntur fyrir framhaldinu.

TENGT EFNI
Deco: Gordon hentar Barcelona betur en Rashford
Barca borgaði 70 milljónir punda til að kaupa hann úr röðum Newcastle United í stað þess að festa kaup á Marcus Rashford sem gerði flotta hluti á láni hjá Spánarmeisturunum á síðustu leiktíð.
„Þessi áskorun er öðruvísi heldur en það sem ég hef hingað til þekkt á ferlinum. Hjá everton var ég í fallbaráttu í nokkur ár og það var mjög erfitt. Hjá Newcastle vorum við svo kannski í baráttu um Meistaradeildarsæti en hjá Barca er markmiðið að vinna alla titla sem eru í boði," sagði Gordon fyrir leik kvöldsins gegn Aston VIlla í Meistaradeildinni.
„Ég naut mín hjá Everton og Newcastle og mér líður eins og tíminn þar hafi hjálpað mér að þroskast sem einstaklingi og fótboltamanni. Ég hef samt aldrei notið mín jafn mikið og hér í Barcelona þar sem ég er að berjast um alla titlana. Fólk heldur að það sé meiri pressa hérna en að mínu mati er þetta betri pressa heldur en að vera í fallbaráttu.
„Ég hef byrjað vel en ég tel mig eiga mikið inni. Ég er ennþá í aðlögunarferli og það gæti tekið mig smá tíma að finna rétta taktinn til að spila upp á mitt besta. Þegar ég er búinn að koma mér almennilega fyrir og venjast öllu hérna munuð þið sjá hlið á mér sem þið hafið aldrei séð."
Börsungar unnu alla leiki sína á upphafi tímabils en töpuðu svo tvisvar í síðustu viku, gegn PSG í Meistaradeildinni og Real Madrid í spænsku deildinni.
„PSG og Real Madrid eru ekki betri lið heldur en við. Við getum unnið hvaða andstæðinga sem er og eigum eftir að bæta okkur með tímanum. Ég elska að spila svona stórleiki."
Gordon er enskur landsliðsmaður og var spurður út í eftirminnilegasta leik ferilsins.
„Mexíkó-England er besti leikur ferilsins út af aðstæðunum og pressunni. Við vorum að spila í rosalegri hæð á mögnuðum leikvangi og stemningin var ótrúleg. Ég hef aldrei upplifað jafn mikið hávaða úr stúkunni og við enduðum á að vinna leikinn þrátt fyrir að vera manni færri. Ég mun aldrei gleyma þessum leik."