Fotbolti.net
10.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Deco: Gordon hentar Barcelona betur en Rashford

Anthony Gordon.

Anthony Gordon.

Canon

Mynd: EPA

Deco, íþróttastjóri Barcelona, segir að leikstíll Anthony Gordon henti Barcelona betur en stíll Marcus Rashford.

Rashford skoraði fjórtán mörk í öllum keppnum þegar hann var á láni hjá Barcelona frá Manchester United en liðið vann spænska meistaatitilinn.

Barcelona hafði ákvæði um að geta keypt framherjann frá Manchester United fyrir 35 milljónir evra en ákvað að nýta sér það ekki.
Gordon gekk til liðs við katalónska félagið frá Newcastle United fyrir meira en 80 milljónir evra.

„Við erum afar þakklát Rashford og hann lagði mikið af mörkum. En Anthony passar betur við okkar hugmyndafræði. Þegar Raphinha var ekki á vellinum missti liðið ákveðna orku og með tilkomu hans getum við leyst það," segir Deco.

Gordon hefur spilað fimm leiki fyrir Barcelona og lagt upp fögur mörk. Liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í La Liga, skorað 17 mörk og aðeins fengið á sig tvö.
Deco: Gordon hentar Barcelona betur en Rashford
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.