Fotbolti.net
03.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Simeone: Kane bætir ímynd fótboltans

Simeone: Kane bætir ímynd fótboltans
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Diego Simeone þjálfari Atlético Madrid svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir risaslag gegn Þýskalandsmeisturum FC Bayern sem verður leikinn í kvöld.
Þýskaland: Kane sýndi gullboltann og klikkaði á víti í stórleiknum
TENGT EFNI

Þýskaland: Kane sýndi gullboltann og klikkaði á víti í stórleiknum

Stórveldin eigast við í fjórðu umferð Meistaradeildar Evrópu og er eitt stig sem skilur á milli þeirra. Atlético er með fjögur stig eftir tap gegn Liverpool og jafntefli við Stuttgart, einu stigi minna en Bayern sem gerði jafntefli við Arsenal eftir að hafa gert óvænt jafntefli við Viking í Noregi.

Harry Kane er skærasta stjarna Bayern og vann hann Ballon d'Or verðlaunin á dögunum.

„Ég vil óska Harry Kane til hamingju með Ballon d'Or, hann átti heldur betur skilið að vinna. Hann er ótrúlegur leikmaður sem mér hefur alltaf líkað vel við. Hann er búinn að þroskast mikið sem leikmaður í gegnum árin og er mikill liðsmaður. Hann bætir ímynd fótboltans og er alvöru fyrirmynd fyrir börn. Hann skilur mikilvæga arfleifð eftir sig og sannar fyrir unga iðkendur að það er hægt að ná mjög langt í gegnum þrotlausa vinnu," sagði Simeone.

„Það er alltaf erfitt að spila við FC Bayern, við munum án nokkurs vafa lenda í erfiðleikum á móti þessu liði. Þeir eru rosalega góðir að pressa og við munum þurfa á miklum stuðningi að halda frá áhorfendapöllunum."

Atlético hefur farið vel af stað í spænsku deildinni og situr í öðru sæti með 28 stig eftir 11 umferðir, tveimur stigum á eftir Spánarmeisturum Barcelona og einu stigi fyrir ofan Real Madrid.

Simeone ræddi meðal annars Ademola Lookman á fundinum, sem er aðeins kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu í fjórtán leikjum.

„Lookman er mikilvægur fyrir sóknarleikinn okkar og ég ber mikið traust til hans. Mörkin eru ekki að koma núna en hann má ekki leyfa því að trufla sig. Hann verður að halda áfram að leggja hart að sér og bíða eftir að mörkin láti sjá sig á ný."

29 ára Lookman hefur komið með beinum hætti að 16 mörkum í 38 leikjum frá félagaskiptunum til Atlético síðasta vetur.
Simeone: Kane bætir ímynd fótboltans
Canon

Mynd: EPA

Simeone: Kane bætir ímynd fótboltans
Canon

Mynd: EPA

Simeone: Kane bætir ímynd fótboltans
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Aston Villa3+99
3Liverpool3+59
4Real Madrid3+59
5Betis3+39
6Stuttgart3+57
7Arsenal3+47
8Barcelona3+56
9Como3+56
10Man City3+46
11Club Brugge3+36
12Sporting3+36
13Dortmund3+16
14Bayern3+55
15Roma3+34
16Atletico Madrid3+14
17Shakhtar D3+14
18PSV304
19Villarreal303
20Man Utd3-13
21Inter3-13
22Napoli3-23
23Galatasaray3-33
24LASK Linz3-33
25Sabah FK3-33
26Feyenoord3-43
27Lens3-43
28Bodö/Glimt3-53
29AEK3-53
30RB Leipzig3-53
31Fenerbahce3-62
32Slavia Prag3-31
33Viking FK3-41
34Porto3-40
35Lille3-60
36Slovan3-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.