14.10.26 - 23:25
Brynjar Ingi Erluson
Ánægður með hvernig Alvarez hefur brugðist við

Julian Alvarez

Mynd: EPA

Julian Alvarez

Mynd: EPA
Diego Simeone, þjálfari Atlético, er afar ánægður með hvernig Alvarez hefur brugðist við eftir stormasaman sumarglugga.
Alvarez vildi ólmur komast til Barcelona í sumar og reyndi að fá Atlético til að selja sig, en félagið tók það ekki í mál. Stjórnarmenn Atlético voru sérstaklega ósáttir við hvernig Börsungar töluðu opinberlega um áhuga sinn á leikmanninum og þótti þeim þeir hafa gengið allt of langt.
Atlético var þó tilbúið að selja Alvarez til annarra félaga, meðal annars Arsenal, en sjálfur hafði hann engan áhuga á því og varð því áfram í Madríd.
Allt þetta fjaðrafok fór illa í stuðningsmenn Atlético sem bauluðu á Alvarez í byrjun tímabilsins. Nú virðist hann hins vegar vera að vinna þá aftur á sitt band og er um leið farinn að sýna meira af þeim tilþrifum sem gerðu hann svo vinsælan hjá félaginu.
„Viðbrögð stuðningsmanna fara alltaf eftir því sem leikmenn sýna inni á vellinum. Julian er farinn að sýna það og gerði það gegn Alaves. Í gær var hann nálægt því að skora og er sífellt að nálgast þann leikmann sem stuðningsmenn vilja sjá,“ sagði Simeone eftir leikinn gegn Manchester United í gær.
Hann hefur komið að einu marki í sex leikjum sínum með Atlético á tímabilinu.