Fotbolti.net
03.11.26 - 22:41
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikið: Cunha ósáttur við Carrick

Matheus Cunha var hetja United og sá síðan rautt undir lokin

Matheus Cunha var hetja United og sá síðan rautt undir lokin

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Matheus Cunha, hetja Manchester United, var allt annað en sáttur eftir 3-2 sigur liðsins á Roma í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex

Cunha jafnaði metin og skoraði síðan sigurmarkið undir lok leiksins gegn Roma til að tryggja Manchester United sinn fyrsta sigur síðan í september.

Brasilíumaðurinn fékk hins vegar sitt annað gula spjald skömmu síðar fyrir ljóta tæklingu og var því rekinn af velli.

Eftir leikinn hljóp Cunha aftur inn á völlinn til að fagna sigrinum með liðsfélögum sínum, en þá kom Michael Carrick, stjóri United, í veg fyrir hann og sagði honum að drífa sig aftur inn í búningsklefa.

Cunha var allt annað en sáttur við þetta og átti í orðaskiptum við Carrick á meðan hann veifaði höndunum af miklum krafti.

Carrick var þó aðeins að reyna að koma í veg fyrir að Brasilíumaðurinn kæmi sér í frekari vandræði, enda hafði hann þegar verið rekinn af velli.

Með því að snúa aftur inn á völlinn eftir rauða spjaldið hefði Cunha getað átt á hættu að fá lengra leikbann og jafnvel sekt.

Atvikið má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan, en Carrick stöðvar Cunha nálægt hliðarlínunni neðst í myndbandinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.