03.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vill ekki nota Gavi sem bakvörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona taka á móti Aston Villa í Meistaradeildinni í kvöld og svaraði Hansi Flick spurningum á fréttamannafundi í gær.

TENGT EFNI
Ætlar ekki að breyta leikstílnum þrátt fyrir tapið
Flick er að glíma við mikil meiðslavandræði í varnarlínunni hjá sér og þurfti hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong að spila sem miðvörður í stórsigri gegn Deportivo Alavés um helgina.
Hinn tvítugi Brian Farinas byrjaði í hægri bakverði og var Flick spurður hvort Gavi gæti ekki spilað hægri bakvörðinn.
„Frenkie de Jong hefur gefið grænt ljós til að spila sem miðvörður þegar við erum í neyð. Hann var frábær í leiknum og ég er mjög ánægður með hann," sagði Flick. „Ég tel Gavi ekki henta fyrir hægri bakvarðarstöðuna hjá okkur. Við þekkjum hans styrkleika og munum halda áfram að nýta þá þegar þörf er á."
Gavi er 22 ára miðjumaður sem hefur fengið lítinn spiltíma á upphafi leiktíðar. Hann er aftarlega í goggunarröð Flick þrátt fyrir að eiga yfir 170 keppnisleiki að baki fyrir Barca.
Barca hafði unnið alla leiki sína á upphafi tímabils þar til stórveldið tapaði í risaslögum gegn Paris Saint-Germain og Real Madrid.
„Þetta gerðist og eina sem við getum gert er að svara af krafti. Við lögðum okkur alla fram og töpuðum en það er nóg eftir af tímabilinu. Við munum fá fleiri tækifæri til að sýna hvað við getum."
Flick var einnig spurður út í brasilíska sóknarmanninn Raphinha sem hefur verið ótrúlega öflugur á tímabilinu.
„Ég gæti ekki verið ánægðari með Raphinha. Hann er svo einbeittur leikmaður og fyrirliði félagsins með réttu. Hann er að sýna öllum heiminum gæðin sín og er svo mikilvægur fyrir okkur."