Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. febrúar 2023 20:37
Elvar Geir Magnússon
Messi með mikilvægt og glæsilegt sigurmark PSG
Mynd: EPA
Lionel Messi sá til þess í dag að Paris Saint-Germain vann sigur í fjarveru Kylian Mbappe og Neymar.

PSG tók á móti Toulouse og Hollendingurinn Branco Van den Boomen kom gestunum yfir beint úr aukaspyrnu. Marokkóski bakvörðurinn Achraf Hakimi jafnaði með laglegu skoti og staðan 1-1 í hálfleik.

En á 58. mínútu skoraði Lionel Messi, sem hafði haft hægt um sig lengi vel í leiknum, sigurmarkið. Það var sérlega glæsilegt mark, skot fyrir utan teig sem hafnaði í horninu.

PSG er með 54 stig í efsta sæti en hefur leikið leik meira en Marseille (46 stig) og Lens (45) sem eru í næstu sætum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner