Fotbolti.net
04.02.25 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

U21 landsliðið fær að vita um andstæðinga sína í vikunni

Frá leik U21 landsliðsins á síðasta ári.

Frá leik U21 landsliðsins á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM 2027 hjá U21 landsliði karla á fimmtudag í þessari viku.

Ísland verður í þriðja styrkleikaflokki í drættinum, en dregið verður í sex riðla með sex liðum í og þrjá sem verða með fimm liðum í. U21 landsliðið kemur svo til með að spila leiki seinna á þessu ári í undankeppninni.

Ísland hefur tvisvar farið í lokakeppni EM U21 landsliða en síðast gerðist það árið 2021.
Styrkleikaflokkur eitt
Spánn
England
Portúgal
Holland
Þýskaland
Frakkland
Úkraína
Ítalía
Danmörk

Styrkleikaflokkur tvö
Rúmenía
Sviss
Króatía
Tékkland
Pólland
Noregur
Belgía
Georgía
Írland

Styrkleikaflokkur þrjú
Slóvenía
Finnland
Svíþjóð
Austurríki
Slóvakía
Grikkland
Ísland
Ungverjaland
Búlgaría

Styrkleikaflokkur fjögur
Skotland
Wales
Ísrael
Norður Makedónía
Tyrkland
Kosóvó
Norður Írland
Færeyjar
Moldóva

Styrkleikaflokkur fimm
Belarús
Svartfjallaland
Bosnía og Hersegóvína
Kýpur
Lettland
Litháen
Kasakstan
Aserbaídsjan
Lúxemborg

Styrkleikaflokkur sex
Eistland
Malta
Armenía
Andorra
Gíbraltar
San Marínó
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.