Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 04. mars 2020 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mbappe með þrennu - Sjáðu stórglæsilegt mark hans
Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Kylian Mbappe skoraði þrennu þegar Paris Saint-Germain vann 5-1 sigur á Lyon í franska bikarnum á þessu miðvikudagskvöldi.

Leikurinn var í undanúrslitum og spilar PSG því til úrslita í franska bikarnum í ár, eins og í fyrra en þá tapaði liðið gegn Rennes í vítaspyrnukeppni.

Eitt af mörkum Mbappe var algjörlega stórkostlegt þar sem hann hljóp upp allan völlinn og skoraði.

Hann er kominn með 30 mörk á þessu tímabili, en hann er aðeins 21 árs gamall. Mbappe er leikmaður sem á eftir að ná gríðarlega langt á sínum ferli - engin spurning um það.

Hér að neðan má sjá besta mark Mbappe í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner