Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. apríl 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: KSÍ 
Fyrstu umferð Íslandsmótsins í eFótbolta lokið
Heiðar Ægisson, leikmaður Stjörnunnar, er í 16-liða úrslitunum.
Heiðar Ægisson, leikmaður Stjörnunnar, er í 16-liða úrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikið er í tölvuleiknum FIFA.
Leikið er í tölvuleiknum FIFA.
Mynd: Getty Images
Fyrstu umferð fyrsta Íslandsmótsins í eFótbolta í FIFA er lokið og er því ljóst hverjir taka þátt í 16-liða úrslitum keppninnar.

Leikið var í átta riðlum, tveir riðlar voru með sjö keppendur innanborðs, en sex með sex keppendur í.

Mikil spenna var síðari keppnisdaginn og er gaman að geta frá því að úrslit í þremur riðlum urðu ljós eftir hreina úrslitaleiki. Viktor Lárusson (KR) tryggði sér annað sætið í riðli 2 með 6-2 sigri gegn Vigfúsi Ólafssyni (Þróttur R.), en þeir voru jafnir að stigum fyrir lokaleikinn.

Tindur Örvar Örvarsson (Elliði) og Hilmar Þór Sólbergsson (Fylkir) voru jafnir að stigum í riðli 3 fyrir lokaleikinn. Eftir æsispennandi viðureign stóð Tindur Örvar upp sem sigurvegari, 2-1, og komst því áfram í 16-liða úrslit.

Að lokum var ótrúleg spenna í riðli 7 og enduðu þar Ásgeir Kristján Karlsson (Fylkir), Guðmundur Tómas Sigfússon (ÍBV) og Victor Wender (Ármann) jafnir að stigum í þremur efstu sætunum. Ásgeir Kristján og Guðmundur Tómas fóru áfram í 16-liða úrslitin.

Í 16-liða úrslitum verður leikið eftir svokölluð Swiss-format. Leikirnir fara fram miðvikudaginn 7. apríl og fimmtudaginn 8. apríl. Eftir fyrri daginn verður ljóst hver er fyrsti leikmaðurinn sem kemst áfram í undanúrslit, en það er sá leikmaður sem verður fyrstu upp í fjóra sigra.

Síðari daginn kemur í ljós hvaða þrír keppendur fylgja honum í undanúrslit. Fyrst er það sá sem er fyrstu upp í fimm sigra og síðan þeir tveir sem eru fyrstir í sex sigra.

Þess má geta að þegar keppendur hafa tapað þremur leikjum eiga þeir ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitum og því dottnir úr leik.

Þeir sem eru komnir áfram í 16-liða úrslit
Viðureign 1
1. Aron Þormar Lárusson | Fylkir
16. Orri Fannar Þórisson | KR

Viðureign 2
2. Jóhann Ólafur Jóhannsson | FH
15. Brynjar Freyr Þorleifsson | Fylkir

Viðureign 3
3. Bjarki Már Sigurðsson | Fylkir
14. Stefán Hallgrímsson | KR

Viðureign 4
4. Agnar Þorláksson | KR
13. Heiðar Ægisson | LFG

Viðureign 5
5. Alexander Aron Hannesson | Keflavík
12. Tindur Örvar Örvarsson | Elliði

Viðureign 6
6. Leifur Sævarsson | LFG
11. Guðmundur Tómas Sigfússon | ÍBV

Viðureign 7
7. Ásgeir Kristján Karlsson | Fylkir
10. Viktor Lárusson | KR

Viðureign 8
8. Skúli Arnarson | Grótta
9. Róbert Daði Sigurþórsson | Fylkir
Athugasemdir
banner
banner
banner