Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 04. apríl 2021 18:40
Aksentije Milisic
Martial frá út tímabilið?
Mynd: Getty Images
Anthony Martial, leikmaður Manchester United, meiddist á hné í landsleik með Frakklandi á dögunum. Talið er að hann gæti verið frá út tímabilið.

„Því miður, en þá tognaði hann í liðbandi í hnénu. Það yrði mjög slæmt að missa hann út tímabilið. Sérstaklega þar sem fréttir frá Frakklandi sögðu að þetta væri ekkert alvarlegt. Þetta lítur illa út," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, fyrir leikinn gegn Brighton í kvöld.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Manchester United en Edinson Cavani hefur verið töluvert meiddur í vetur og aldrei náð að spila marga leiki í röð.

Þá er United með Marcus Rashford og Mason Greenwood sem geta spilað frammi. United stendur vel að vígi í baráttunni um Meistaradeildarsæti á þessari leiktíð og þá er liðið enn í baráttunni í Evrópudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner