Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. apríl 2021 19:20
Aksentije Milisic
Pulisic fór meiddur af velli í gær
Mynd: Getty Images
Bandaríski vængmaðurinn Christian Pulisic fór meiddur af velli í tapi Chelsea gegn WBA í gær.

Pulisic kom Chelsea yfir í leiknum en þetta var hans fyrsta mark síðan á síðasta ári. Þegar leikmenn voru að snúa til baka á völlinn eftir leikhléið sást að Pulisic virtist ekki ganga alveg heill til skógar.

Hann ræddi við Thomas Tuchel, stjóra liðsins, sem tók leikmanninn af velli en Pulisic virtist meiðast við það að taka sprett inn á völlinn eftir leikhlé.

„Christian tók sprett þegar við vorum að snúa aftur á völlinn í síðari hálfleikinn og hann fékk tak í lærið. Hann sagðist ekki geta haldið áfram," sagði Tuchel.

Mason Mount kom inn fyrir Pulisic í hálfleiknum en Chelsea tapaði leiknum 2-5 sem kom mörgum spánskt fyrir sjónir. Slæmt tap í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Athugasemdir
banner
banner