PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
   lau 04. apríl 2026 19:44
Elvar Geir Magnússon
Úlfarsárdal
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Elías í leik með Víkingi á undirbúningstímabilinu.
Elías í leik með Víkingi á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson var meðal markaskorara Víkings sem vann 4-2 útisigur á Fram og kom sér þar með í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Elías gekk í raðir Víkings í vetur og leiddi sóknarlínu liðsins í leiknum í kvöld.

„Ég er mjög sáttur við að fá 90 mínútur og sérstaklega ánægjulegt að vinna leikinn," segir Elías en það er mikil samkeppni um stöðu í Víkingsliðinu eins og fjallað hefur verið mikið um.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  4 Víkingur R.

„Það er alltaf gott sem framherji að skora mark. Það hjálpar sjálfstraustinu. Ég er ánægður með að hafa sett mark í dag. Það er gott fyrir hópinn að hafa samkeppni. Við erum með sterkt lið og það geta allir í hópnum verið í fyrstu ellefu."

Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk gegn Vestra í Meistarakeppni KSÍ en var ekki með í dag.

„Við erum ólíkir leikmenn og ég held að það sé gott fyrir liðið að hafa ólíka framherja. Ég og Niko erum góðir félagar, það er gaman að keppa við hann um sætið og við styðjum líka við bakið á hvor öðrum. Það er bara skemmtilegt."

Hvernig metur hann undirbúningstímabilið hjá sér persónulega?

„Þetta er þokkalega góð byrjun fyrir mig persónulega. Ég er að koma mér í almennilegt stand, maður kemst í besta standið með því að spila leiki. Maður er að komast betur inn í þetta og kynnast leikstílnum hjá hverjum og einum. Það getur allt tekið tíma, mér finnst ég vera að skilja hvern og einn betur."

Víkingur hefur leik í Bestu deildinni á föstudaginn, gegn Breiðabliki á heimavelli.

„Það eru tvö sterk lið að spila fyrsta leikinn og það er mikilvægt að byrja vel," segir Elías en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner