Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 04. apríl 2026 20:13
Elvar Geir Magnússon
Úlfarsárdal
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 4-2 útisigur gegn Fram í skemmtilegum leik sem fram fór í Úlfarsárdalnum. Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  4 Víkingur R.

„Fram er mjög trikkí andstæðingur að mæta, eru þéttir fyrir og stórhættulegir í skyndisóknum. Mér finnst þeir vera með mjög vanmetið lið, frábæra leikmenn," segir Aron.

Elías Már Ómarsson var meðal markaskorara Víkings í dag. Það var gott fyrir hann að ná inn marki.

„Niko var tæpur og Elías kom inn, átti stangarskot, skoraði og var líflegur. Það er hrikalega jákvætt."

Víkingur mætir Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildarinnar á föstudagskvöld. Nikolaj Hansen tognaði í fyrradag og var því ekki með í dag. Er hann tæpur fyrir fyrstu umferðina?

„Nei ég geri ekki ráð fyrir því. Þetta var smá varúðarráðstöfun. Hann fékk aðeins í nárann á æfingu í fyrradag. Maður veit aldrei en þetta eru ekkert stór meiðsli."

Gylfi Þór Sigurðsson var tekinn af velli í hálfleik í dag.

„Hann fékk eitthvað högg og bólgnaði. Það þarf bara að skoða það. Ég get lítið sagt um það núna en ég á ekki von á því að það sé eitthvað vesen."

Í viðtalinu sem sjá má í sjónvarpinu hér að ofan ræðir Aron Baldvin nánar um komandi leik gegn Breiðabiki.
Slapp
banner
banner
banner
banner