Fotbolti.net
04.06.17 - 19:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bjössi: Dion heitasti leikmaðurinn á Íslandi þegar hann spilar

Auglýsing
Sigurbjörn Hreiðarsson.

Sigurbjörn Hreiðarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst vanta upp á fullt af hlutum hjá okkur,\" sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir 2-1 sigur á ÍBV í dag.

Eftir að hafa komist í 1-0 snemma leiks gáfu Valsmenn eftir og ÍBV komst inn í leikinn. Valur vann þó að lokum.
„Þeir komu svo grimmari inn í leikinn og stundum gerist það svona, við skorum snemma - þetta er þriðji leikurinn á sjö dögum - og það vantar kannski þetta extra í leikinn.\"

Dion Acoff hefur verið frá í síðustu leikjum vegna meiðsla.

„Þetta var spurning um þennan leik eða næsta og það er langt í næsta, þannig að það var ákveðið að \"gambla\" ekkert með hann.\"

„Þegar Dion var að spila þá var hann heitasti leikmaðurinn á Íslandi og það gefur augaleið að liðin taka á honum og þora þar að leiðandi ekki að fara það framarlega á okkur, en við aðlögum okkur.\"

Dönsku leikmennirnir hjá Val hafa mikið verið á bekknum í upphafi tímabils. Sigurbjörn var spurður út í þá.

„Við erum bara með 18 manna hóp af útileikmönnum og hvort sem það er Dani eða Íslendingur í honum, þá hafa leikmennirnir sem hafa verið að byrja leikina staðið sig mjög vel og þá skiptir engu máli hvort þeir séu Skandinavar eða Íslendingar. það eru 11 bestu að hverju sinni.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.