Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 10:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hárrétt ákvörðun hjá Markúsi að fara til Íslands - „Reyndi að hjálpa honum eins og ég gat í gegnum þetta"
Uppalinn hjá Fram en samdi við ÍA.
Uppalinn hjá Fram en samdi við ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Var í um ár hjá Triestina.
Var í um ár hjá Triestina.
Mynd: Triestina
Markús Páll Ellertsson gekk í raðir ÍA í mars eftir að hafa verið í um ár hjá ítalska félaginu Triestina og kom þar einungis við sögu í örfáum leikjum. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við ÍA og hefur farið mjög vel af stað í gulu treyjunnni; skorað sex mörk í fyrstu níu leikjunum í Bestu deildinni.

Hann er fæddur árið 2006, er á löngum samningi og hefur verið iðinn við kolann og er því álitinn mjög verðmætur leikmaður í deildinni.

Hjá Triestina var hann liðsfélagi Kristófers Jónssonar sem ræddi við Fótbolta.net í vikunni.

„Ég og Markús náðum vel saman og mér fannst hann standa sig mjög vel allan þennan tíma og átti klárlega fleiri mínútur skilið. Hann kemur út á erfiðum tímapunkti, þegar liðinu var ekki að ganga vel og óreiðan að hefjast af alvöru hjá félaginu. Hann lagði sig alltaf 100% fram á æfingum og sýndi þar að hann átti fullan rétt að fá tækifæri til að sýna sig og hjálpa liðinu inni á vellinum."

„Í gegnum allt þetta var hann alltaf þolinmóður og beið eftir að tækifærið myndi koma. Þetta var mjög erfið staða að vera í fyrir hann og hvað þá svona ungur, en ég reyndi að hjálpa honum eins og ég gat í gegnum þetta."

„Svo urðu þjálfaraskipti einmitt þegar hann var byrjaður að fá mínútur og var að vinna sig inn traust þjálfarans. Eftir þá breytingu varð staðan hans verri og var einhverra hluta vegna ekki inni í myndinni hjá nýja þjálfaranum og fékk því engin tækifæri til að sýna sig."

„Að lokum held ég að hann hafi tekið rétta ákvörðun að snúa heim og hann hefur heldur betur farið vel af stað með ÍA. Mjög gaman að sjá hann sýna öllum hversu virkilega góður hann er og ég vona að hann haldi þessu formi áfram. Hann hefur unnið vel fyrir þessu og á þetta svo sannarlega skilið,"
segir Kristófer.
Slapp
banner
banner
banner