04.07.16 - 21:32
Matthías Freyr Matthíasson
Forsætisráðherra: Alþingi gæti lært margt af fótboltanum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra Íslands var mættur á heimkomuhátíð Íslenska landsliðsins á Arnarhóli í dag. Fótbolti.net náði tali af honum eftir athöfnina og spurði hann út í móttökurnar sem íslenska liðið fékk.
„Þetta er náttúrlega svo stórkostlegt og nú sýnir fólkið í landinu í verki hvernig stuðningurinn hefur verið síðustu daga og þetta er bara frábært.
Ég veit ekki hvort ég hafi átt von á þessum fjölda en undanfarna daga hefur maður séð hvað það er mikið áhorf og ofsalegur áhugi og spenna og gleði í kringum þetta þannig að því ekki já. En þetta er sannkallaður frábær fjöldi.
Ég held að strákarnir skynji mjög vel þennan stuðning sem þeir hafa fengið frá fólkinu í landinu og hve margir hafa tekið þátt í leikjunum með þeim úti, Tólfan hvernig hún hefur stýrt þessu. Þetta er heimsviðburður, ekki bara liðið sjálft sem er útaf fyrir sig frábært heldur líka stuðningurinn úti og hérna heima og ég held að það sé fullt af fjölmiðlamönnum að fylgjast með þessu atriði í kvöld.
Ég held að ævintýrið í fótboltanum og íþróttasögunni sé rétt að byrja og ég vonast svo sannarlega að þetta hjálpi til við að viðhalda þeirri gleði og samhug sem hefur einkennt þessa keppni.
Ég held að Alþingi geti lært margt af fótboltanum\"
Nánar er rætt við Sigurð Inga í sjónvarpinu hér að ofan.