04.07.20 - 16:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeildin: Alexander Veigar tryggði Grindavík sigur fyrir vestan

Alexander Veigar skoraði sigurmarkið í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri 2 - 3 Grindavík
0-1 Stefán Ingi Sigurðarson ('22)
0-2 Gunnar Þorsteinsson ('47)
1-2 Sigurður Grétar Benónýsson ('65)
2-2 Rafael Navarro ('74)
2-3 Alexander Veigar Þórarinsson ('87)
0-1 Stefán Ingi Sigurðarson ('22)
0-2 Gunnar Þorsteinsson ('47)
1-2 Sigurður Grétar Benónýsson ('65)
2-2 Rafael Navarro ('74)
2-3 Alexander Veigar Þórarinsson ('87)
Lokaleiknum í 3. umferð er nýlokið, leikið var á Olísvellinum á Ísafirði. Þar tóku heimamenn í Vestra á móti Grindvíkingum.
Stefán Ingi Sigurðarson skoraði fyrsta mark leiksins á 22. mínútu en hann kom að láni frá Breiðabliki í vikunni. Fyrirliðinn Gunnar Þorsteinsson bætti við marki fyrir gestina á 47. mínútu áður en Vestri svaraði með tveimur mörkum.
Þau komu frá Sigurði Grétari Benónýssyni og Rafael Navarro. Varamaðurinn Alexander Veigar Þórarinsson sá til þess að Grindvíkingar fóru heim með öll stigin þegar hann skoraði sigurmarkið á 87. mínútu.
Grindavík er með sex stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar, Vestri er með eitt stig.