Enska landsliðið setti nokkur met í 4-0 sigrinum á Úkraínu í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í gær.
Jordan Pickford hefur staðið á milli stanganna hjá Englendingum en hann ásamt liðinu hefur nú haldið hreinu í öllum fimm leikjum liðsins á Evrópumótinu.
Það er nýtt met því engu öðru liði hefur tekist að halda hreinu í svona mörgum leikjum í röð á mótinu.
Ekki nóg með það þá er þetta í fyrsta sinn í sögu enska landsliðsins sem liðið heldur hreinu í sjö leikjum í röð. Fimm leikjum á EM og í tveimur vináttuleikjum fyrir mótið.
Næsti leikur er í undanúrslitum gegn Dönum en sá leikur fer fram á miðvikudag.
7 - England have kept seven consecutive clean sheets for the first time in their history, with the Three Lions run without conceding currently standing at 662 minutes. Resolute. #EURO2020 pic.twitter.com/sywVfgQMnI
— OptaJoe (@OptaJoe) July 3, 2021
Athugasemdir