Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. júlí 2021 10:31
Brynjar Ingi Erluson
PSG reynir að fá Messi - Saul til Liverpool?
Powerade
PSG er búið að bjóða Lionel Messi samning
PSG er búið að bjóða Lionel Messi samning
Mynd: Getty Images
Saul til Liverpool?
Saul til Liverpool?
Mynd: Getty Images
Þá er komið að öllu því helsta i slúðrinu í fótboltanum í dag en það er af nægu að taka.

Franska félagið Paris Saint-Germain hefur boðið argentínska sóknarmanninum, Lionel Messi, samning en hann er sem stendur án félags eftir að samningur hans við Barcelona rann út á dögunum. Barcelona er þó enn vongott um að halda honum. (AS)

Manchester United er tilbúið að hleypa Donny van de Beek frá félaginu í sumar. Real Madrid hefur áhuga á að fá hann á láni út tímabilið. (Star)

Liverpool íhugar þá að leggja fram tilboð í Saul, miðjumann Atlético Madríd, en hann vill ólmur spila í ensku úrvalsdeildinni. (La Razon)

Liverpool hefur einnig áhuga á Renato Sanches, miðjumanni Lille í Frakklandi, en Arsenal hefur einnig áhuga á þessum fyrrum leikmanni Bayern München. (Onze Mondial)

Arsenal vill þá einnig fá Sam Johnstone, markvörð WBA, ef félaginu tekst ekki að fá Aaron Ramsdale frá Sheffield United. (Star)

Massimo Allegri, þjálfari Juventus, hefur tilkynnt félaginu að hann vilji fá Paul Pogba aftur frá Manchester United. Pogba, vann tvo titla hjá Juventus undir Allegri. (90 min)

Hakim Ziyech, leikmaður Chelsea, er eftirsóttur af Milan. Ítalska félagið hefur snúið sér að Ziyech þar sem launakröfur James Rodriguez eru óraunhæfar. (Corriere dello Sport)

Barcelona hefur einnig boðið Milan að fá Philippe Coutinho en Börsungar vilja ólmir losna við brasilíska sóknartengiliðinn. (Mundo Deportivo)

Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard mun ekki vera áfram í herbúðum Arsenal en hann var á láni frá Real Madrid á síðustu leiktíð. (Football London)

Sean Dyche, stjóri Burnley, ætlar að leggja fram tilboð í Marc Albrighton, leikmann Leicester City. (Sun)

Patrik Schick, leikmaður Bayer Leverkusen og tékkneska landsliðsins, er eftirsóttur en Milan vill kaupa hann í sumar. Schick hefur spilað glimrandi vel með Tékkum á EM. (TuttoMercatoWeb)

Inter er að hefja viðræður við umboðsmann Denzel Dumfries, varnarmann PSV Eindhoven. (Calciomercato)

Tottenham hefur áhuga á serbneska framherjanum Dusan Vlahovic en hann er á mála hjá Fiorentina. Hann skoraði 21 mark í Seríu A á síðustu leiktíð. (Corriere dello sport)

Matteo Guendouzi, miðjumaður Arsenal, er að ganga í raðir Marseille. Franska félagið er einnig að fá William Saliba á láni frá Arsenal. (Goal)
Athugasemdir
banner
banner