Fotbolti.net
15.09.26 - 14:51
Kári Snorrason
Gatorade bikar Fótbolti.net

Harkið spáir í undanúrslit Gatorade bikars Fótbolta.net

Guðbjörn Smári spáir í leikina fyrir hönd Harksins.

Guðbjörn Smári spáir í leikina fyrir hönd Harksins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Undanúrslit Gatorade bikars Fótbolta.net fara fram síðar í dag. Kormákur/Hvöt tekur á móti Haukum á Blönduósvelli og Selfoss tekur á móti Álftanesi á JÁVERK-vellinum.

Sæti á Laugardalsvelli er í húfi og fer úrslitaleikurinn fram næstkomandi sunnudag.

Guðbjörn Smári Birgisson, annar þáttastjórnenda Harksins, hlaðvarpsþáttar um 2. og 3. deild hér á Fótbolta.net, spáir í spilin fyrir undanúrslitin.
Telja líklegast að Selfoss og Haukar leiki til úrslita
TENGT EFNI

Telja líklegast að Selfoss og Haukar leiki til úrslita

Kormákur/Hvöt 1-3 Haukar (16:15 í dag)
Haukar taka þetta nokkuð örugglega, mikið af meiðslum hjá Kormáks/Hvatar mönnum og eitthvað af útlendingunum farnir heim. Haukarnir gátu hvílt mikið í seinustu tveimur leikjum og mun það nýtast þeim vel í þessum leik.

Hins vegar ef Uros markmaður fer í gamla góða gírinn sinn þá eiga norðanmenn smá séns. Skyldi þetta fara í vító þá verður Uros hetjan og þeir fara áfram

Mörk Haukamanna skora: Jonni Barðdal, Sigurður Hrannar og Ólafur Darri. Mark Kormáks/Hvatar skorar Pere Belmonte

Selfoss 2-2 Álftanes (16:30 í dag)
Þetta fer í framlengingu eftir æsispennandi leik. Ég spái því að það verði svokallað cupset hérna og Álftanes tekur þetta í vítaspyrnukeppni líkt og við Fjölni.

Viðar Örn skorar bæði mörk Selfossmanna eftir undirbúning frá Frosta Brynjólfs. Sveinn Sær og Arian skora fyrir Álftanes

Eftir þessa leiki fær Guðjón Pétur sinn draumaúrslitaleik þar sem hann mætir sínum gömlu félögum.

Báðir leikir verða í beinni útsendingu á Livey og í textalýsingu hér á Fótbolti.net
Haukar hafa tryggt sig upp í Lengjudeildina.

Haukar hafa tryggt sig upp í Lengjudeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álftnesingar unnu 4. deildina.

Álftnesingar unnu 4. deildina.

Canon

Mynd: Álftanes

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.