Fotbolti.net
04.07.26 - 11:21
Brynjar Ingi Erluson

Kemur inn í hóp Keflavíkur vegna meiðsla

Kemur inn í hóp Keflavíkur vegna meiðsla
Canon

Mynd: Keflavík

Markvörðurinn Helgi Bergmann Hermannsson er kominn inn í hópinn hjá Keflavík vegna meiðsla Mirsad Basic, en þetta kemur fram í tilkynningu Keflvíkinga.
Basic braut bein á æfingu með Keflavík
TENGT EFNI

Basic braut bein á æfingu með Keflavík

Basic er 21 árs gamall og gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið.

Hann braut bein á æfingu liðsins í síðasta mánuði og ljóst er að hann verður frá næstu vikurnar.

Keflvíkingar hafa því leitað til Helga Bergmanns, sem er uppalinn hjá félaginu.

Helgi er 24 ára gamall og á tvo unglingalandsleiki að baki, en hann hefur ekki spilað keppnisleik með meistaraflokki Keflavíkur. Hann hefur áður spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Helgi var á bekknum gegn KR og Val og verður áfram í leikmannahópi Keflavíkur í næstu leikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.