Basic braut bein á æfingu með Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mirsad Basic varð fyrir því óláni að brjóta bein í hönd á æfingu með Keflavík fyrr í þessum mánuði.
Basic er markvörður sem gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið og hefur verið til vara fyrir Ásgeir Orra Magnússon sem hefur staðið vaktina í markinu.
Basic var ekki í leikmannahópnum gegn FH um síðustu helgi vegna meiðslanna og er ljóst að hann verður frá næstu vikurnar.

Basic er 21 árs Svíi sem var á mála hjá Öster áður en hann kom til Íslands og hafði spilað á láni í þriðju efstu deild Svíþjóðar.
Keflavík heimsækir á morgun Val í 11. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Keflavík heimsækir á morgun Val í 11. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 13 | +7 | 27 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |