Fotbolti.net
04.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Segir Sigurpál hafa átt skilið tækifæri - „Ekki að leita að blórabögglum"

Segir Sigurpál hafa átt skilið tækifæri - „Ekki að leita að blórabögglum"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það vakti athygli þegar það kom í ljós að Sigurpáll Sören Ingólfsson var í marki KR þegar liðið heimsótti Þór á dögunum.

Halldór Snær Georgsson hefur varið mark KR í sumar en hann var tekinn út úr liðinu eftir tap gegn Keflavík. Það voru skrautlegar aðstæður á Akureyri en Sigurpáll fékk á sig mark beint úr hornspyrnu og þá skoraði kollegi hans hinu megin, Aron Birkir Stefánsson, nánast frá sínum eigin vítateig.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður hvort hann gæti kennt Sigurpáli um mörkin.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
„Ég geri það raunverulega ekki. Það hefði verið rosalega auðvelt fyrir hann að vera lítill og fara smækka sjálfan sig og grafa sig niður í jörðina. Sýnir hvers konar karakter hann er. Við berum fullt traust til hans eins og við berum fullt traust til Dóra (Halldórs Snæs Georgssonar)," sagði Óskar Hrafn.

„Við erum ekki að leita að blórabögglum. Við fáum mark á okkur saman, töpum saman, vinnum saman og skorum saman. Það er engum um að kenna þegar við fáum á okkur mörk, ekki einum um að kenna þegar byrjunin er eins og hún er."

Óskar Hrafn var spurður að því hvers vegna hann ákvað að gera markmannsbreytingu.

„Mér fannst þetta vera tímapunktur. Við köllum hann yfir, hann var í mjög góðum gír hjá Ægi rétt áður en glugginn lokar og Arnar meiðist. Við köllum hann yfir í varamarkshlutverk. Við í rauninni rænum hann 22 leikjum í Lengjudeildinni. Eins og þetta var búið að vera þá á hann skilið að fá sénsinn á einhverjum tímapunkti," sagði Óskar Hrafn.

„Hann er frábær á æfingum, feykilega góður markmaður. Geggjaður í hópnum, gríðarlega mikill félagsmaður. Hann átti skilið að fá tækifæri. Það er ekki þannig að varamarkmaðurinn megi ekki spila nema aðalmarkvörðurinn sé meiddur eða í banni. Það verður að vera svigrúm til að skipta um markmann án þess að það sé gríðarleg dramatík."
,,Það verður að vera svigrúm til að skipta um markmann án þess að það sé gríðarleg dramatík

,,Það verður að vera svigrúm til að skipta um markmann án þess að það sé gríðarleg dramatík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óskar Hrafn: Skrítnustu fimmtán mínútur sem ég hef séð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.