Chelsea og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli í æfingaleik á Stamford Bridge í kvöld. Hakim Ziyech skoraði bæði mörk heimamanna.
Ziyech skoraði fyrra markið á 16. mínútu. Chelsea vann boltann á miðjunni og boltinn barst til Ziyech sem keyrði á vörnina og lét svo vaða fyrir utan teiginn í hægra hornið.
Hann bætti við öðru marki í upphafi síðari hálfleiks eftir sendingu frá Marcos Alonso. Ziyech fékk boltann í teignum og skoraði með góðu vinstri fótar skoti.
Lucas Moura minnkaði muninn með skoti sem fór af varnarmanni og yfir Edouard Mendy í markinu.
Steven Bergwijn jafnaði síðan metin eftir sendingu frá Heung-Min Son. Bergwijn keyrði vinstra megin inn í teiginn og klobbaði Mendy í markinu.
Lokatölur 2-2. Þetta var síðasti leikur Chelsea á undirbúningstímabilinu en liðið mætir Villarreal í Ofurbikar Evrópu í næstu viku á meðan Tottenham spilar við Arsenal í síðasta æfingaleiknum fyrir byrjun ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir