Fotbolti.net
14.09.26 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson

Wijnaldum bjargaði stigi - Firmino og félagar steinlágu

Wijnaldum bjargaði stigi - Firmino og félagar steinlágu
Canon

Mynd: EPA

Fyrsta umferð tímabilsins í vesturhluta asísku Meistaradeildarinnar hófst í dag og komu nokkur vel þekkt nöfn úr fótboltaheiminum við sögu.
Hollendingurinn þaulreyndi Georginio Wijnaldum kom inn af bekknum í seinni hálfleik og bjargaði stigi fyrir Al-Ittihad á útivelli gegn Shamal í Katar.

Shamal náði forystunni á 63. mínútu og gerði Wijnaldum jöfnunarmarkið í uppbótartíma, eftir undirbúning frá samlanda sínum Steven Bergwijn.

Danilo Pereira, Houssem Aouar og Youssef En-Nesyri voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Ittihad.

Stórveldi Al-Ahli gerði þá jafntefli á heimavelli eftir að hafa lent undir gegn Pakhtakor frá Úsbekistan. Gestirnir náðu forystunni á 86. mínútu og gerði Firas Al Buraikan jöfnunarmarkið í uppbótartíma.

Edouard Mendy varði mark Al-Ahli og voru Ivan Toney, Galeno og Merih Demiral einnig meðal byrjunarliðsmanna. Valentin Atangana og Eduard Spertsyan komu inn af bekknum á meðan Francisco Trincao og Roger Ibanez voru ónotaðir varamenn.

Julian Quinones og Mateo Retegui skoruðu þá mörkin í sigri Al-Qadsiah gegn Al-Wasl frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Tijjani Reijnders, Nacho Fernández og Julian Weigl voru einnig meðal byrjunarliðsmanna.

Al-Wasl minnkaði muninn seint í uppbótartíma, lokatölur 2-1.

Roberto Firmino og félagar í liði Al-Sadd frá Katar steinlágu þá gegn Esteghlal í Íran. Firmino lék allan leikinn í 3-0 tapi.

Shamal 1 - 1 Al-Ittihad
1-0 B. Bounedjah ('63)
1-1 Georginio Wijnaldum ('94)

Al-Ahli 1 - 1 Pakhtakor
0-1 Flamarion ('86)
1-1 Firas Al Buraikan ('93)

Al-Qadsiah 2 - 1 Al-Wasl
1-0 Julian Quinones ('57)
2-0 Mateo Retegui ('61)
2-1 Leandro Spadacio ('96)

Esteglhal 3 - 0 Al-Sadd

Shabab Al-Ahli Dubai 1 - 0 Tractor

Neftchi Fargona 1 - 0 Al Quwa Al Jawiya
Wijnaldum bjargaði stigi - Firmino og félagar steinlágu
Canon

Mynd: Al Ahli

Wijnaldum bjargaði stigi - Firmino og félagar steinlágu
Canon

Mynd: EPA

Wijnaldum bjargaði stigi - Firmino og félagar steinlágu
Canon

Mynd: Al Sadd

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.