14.09.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Meistararnir svöruðu með fimm mörkum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Inter 5 - 2 Udinese
0-1 James Abankwah ('9 )
0-2 Jurgen Ekkelenkamp ('16 )
1-2 Carlos Augusto ('26 )
2-2 Nicolo Barella ('35 )
3-2 Marcus Thuram ('57 )
4-2 Pio Esposito ('67 )
5-2 Ange-Yoan Bonny ('79 )
0-1 James Abankwah ('9 )
0-2 Jurgen Ekkelenkamp ('16 )
1-2 Carlos Augusto ('26 )
2-2 Nicolo Barella ('35 )
3-2 Marcus Thuram ('57 )
4-2 Pio Esposito ('67 )
5-2 Ange-Yoan Bonny ('79 )
Ítalíumeistarar Inter fengu Udinese í heimsókn í síðasta leik 4. umferðar ítalska deildartímabilsins og náðu gestirnir óvænt tveggja marka forystu á fyrstu 16 mínútunum.
James Abankwah kom gestunum yfir með skalla áður en Jurgen Ekkelenkamp tvöfaldaði forystuna af stuttu færi eftir góðan undirbúning frá Keinan Davis.
Heimamenn svöruðu þó fyrir sig með tveimur mörkum. Fyrst minnkaði Carlos Augusto muninn með bylmingsskoti af um 25 metra færi áður en Nicoló Barella jafnaði metin með skrautlegu marki. Barella var með boltann innan vítateigs þegar hann féll til jarðar en var snöggur að standa upp og skora.
Í síðari hálfleik skoruðu framherjarnir Marcus Thuram og Pio Esposito sitthvort markið. Thuram skoraði eftir góðan undirbúning frá Andy Diouf áður en Esposito skoraði úr góðu færi eftir frábært spil. Fyrirliðinn Lautaro Martínez var ónotaður varamaður.
Ange-Yoan Bonny kom inn af bekknum og innsiglaði sigur ríkjandi meistara með fimmta marki liðsins. Hann gerði vel að skora eftir einstaklega skrautlega skyndisókn þar sem varnarleikur Udinese var allt annað en sannfærandi.
Gestirnir minnkuðu muninn á lokamínútum leiksins þegar 19 ára Idrissa Gueye skoraði eftir fyrir gjöf, en nær komust þeir ekki svo lokatölur urðu 5-3.
Inter deilir toppsæti Serie A deildarinnar með AS Roma eftir þennan sigur, þar sem bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðirnar. Udinese er með fjögur stig.

TENGT EFNI
Ítalía: Malen óstöðvandi - Como eltir

Mynd: EPA

Mynd: EPA