Fotbolti.net
04.08.26 - 13:32
Kári Snorrason

58% stiga Þórs komið gegn efstu þremur liðunum

Sótt sjö stig af tólf gegn efstu þremur liðunum.

Sótt sjö stig af tólf gegn efstu þremur liðunum.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Botnlið Þórs tekur á móti Breiðabliki síðdegis í dag á VÍS-vellinum á Akureyri.

Þrátt fyrir að stigasöfnun Þórs hafi verið dræm það sem af er tímabili hefur liðinu gengið vel gegn efstu þremur liðunum; Víkingi, Fram og KR.

Þórsarar hafa unnið Fram og Víking ásamt því að gera jafntefli við KR. Af stigunum 12 sem liðið er með hafa sjö þeirra komið gegn umræddum liðum, sem gerir um 58% hlutfall.
Breiðablik er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar. Þeir unnu Þór örugglega á heimavelli í fyrri umferðinni, 4-0.

Hinn spænski Kevin Vazquez gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Þór í kvöld. Bakvörðurinn gekk í raðir Þórs fyrir helgi en hann á að baki 68 leiki í La Liga, efstu deild á Spáni.

þriðjudagur 4. ágúst
Besta karla
18:30 Þór-Breiðablik (VÍS völlurinn)
Kevin Vazquez gæti spilað sinn fyrsta leik í kvöld.

Kevin Vazquez gæti spilað sinn fyrsta leik í kvöld.

Canon

Mynd: Þór

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.