Fotbolti.net
04.08.26 - 08:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Áhugi frá pólskum stórliðum á Ísaki Andra

Ætlar sér að hjálpa Norrköping upp í úrvalsdeildina.

Ætlar sér að hjálpa Norrköping upp í úrvalsdeildina.

Canon

Mynd: IFK Norrköping

Nafn Ísaks Andra Sigurgeirssonar hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net verið á blaði hjá pólskum stórliðum og sýndu Wisla Krakow og Legia Warsaw honum áhuga í sumar.

Ísak, sem átti mjög gott tímabil í fyrra og vakti verðskuldaða athygli með liði sínu Norrköping, á eitt ár eftir af samningi sínum í Svíþjóð.
Ísak er 22 ára kantmaður sem uppalinn er hjá Stjörnunni. Hann gekk í raðir Norrköping sumarið 2023. Á síðasta tímabili skoraði hann þrjú mörk og lagði upp sjö í sænsku úrvalsdeildinni þegar Norrköping féll úr deildinni.

Hann var lánaður til Viborg í Danmörku fyrri hluta árs en náði einungis að spila fjóra leiki vegna meiðsla. Hann sneri til baka á völlinn í síðasta mánuði og hefur komið við sögu í síðustu tveimur leikjum.

Norrköping er með tveggja stiga forystu á toppi sænsku B-deildarinnar þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað. Eftir sigurinn gegn Helsingborg um helgina ræddi Ísak við staðarmiðilinn NT.

„Ég vil spila hér. Að koma inn og spila fyrir framan stuðningsmennina með þessum hópi, og við að leiða deildina – ég finn að eitthvað gott er að gerast í IFK," sagði Ísak sem er með einbeitinguna á að hjálpa Norrköping upp í úrvalsdeildina.

„Mér leið illa þegar við féllum í fyrra. Svo fór ég á lán, meiddist og hafði verið frá í fjóra mánuði fyrir leikinn gegn Landskrona. Það er svo gott að vera kominn aftur hingað og spila fótbolta fyrir framan þessa stuðningsmenn."

„Ég vil hjálpa félaginu að komast aftur upp í Allsvenskan. Það á heima í Allsvenskan, þetta er risastórt félag með frábæra aðdáendur,"
sagði Ísak Andri.
Lék á sínum tíma tíu leiki með U21 landsliðinu.

Lék á sínum tíma tíu leiki með U21 landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.