04.08.26 - 17:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Þórs og Breiðabliks: Fimm breytingar hjá Þór - Tveir 2009 byrja

Siggi Höskulds í banni en Kevin Vazquez spilar sinn fyrsta leik.

Mynd: Þór

Þór Andersen byrjar hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri byrjar hjá Þór.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Siggi Höskulds í banni en Kevin Vazquez spilar sinn fyrsta leik.

Mynd: Þór
Klukkan 18:30 tekur Þór á móti Breiðabliki í 17. umferð Bestu deildarinnar. Þór er í 12. sæti fyrir leikinn og Breiðablik í 4. sæti, með sautján stigum meira.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, tekur út leikbann í dag eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í sumar gegn KA.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, tekur út leikbann í dag eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í sumar gegn KA.

TENGT EFNI
Þór að fá leikmann sem á 68 leiki í La Liga
Það eru fimm breytingar á liði Þórs frá leiknum gegn KA fyrir rúmri viku síðan. Ágúst Eðvald Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson snúa til baka úr leikbanni og Kevin Vazquez, sem kom í síðustu viku, koma inn í liðið. Auk þeirra koma þeir Þorri Ingólfsson og Ásbjörn Líndal inn í liðið. Birgir Ómar Hlynsson og Sigfús Fannar Gunnarsson taka sér sæti á bekknum en þeir Kristófer Kristjánsson, Victor Bertomeu og Ragnar Óli Ragnarsson eru ekki í hópnum.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn ÍBV. Jónatan Guðni Arnarsson, Kristinn Steindórsson og Ásgeir Helgi Orrason taka sér sæti á bekknum og inn koma Þór Andersen Willumsson, Viktör Örn Margeirsson og Davíð Ingvarsson.
Kristófer Ingi Kristinsson er á bekknum hjá Blikum eftir meiðsli en Aron Bjarnason og Höskuldur Gunnlaugsson eru ekki með.
Þeir Þór Andersen og Þorri Ingólfs eru fæddir 2009.

Byrjunarlið Þór
- 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
- 2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
- 5. Yann Emmanuel Affi
- 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
- 8. Einar Freyr Halldórsson
- 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
- 17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
- 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
- 23. Kevin Vazquez Comesaña
- 25. Christian Jakobsen
- 35. Þorri Ingólfsson
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Anton Ari Einarsson (m)
- 5. Ívar Örn Árnason
- 8. Viktor Karl Einarsson
- 9. Óli Valur Ómarsson
- 14. Hlynur Freyr Karlsson
- 15. Ágúst Orri Þorsteinsson
- 18. Davíð Ingvarsson
- 19. Kristinn Jónsson
- 21. Viktor Örn Margeirsson
- 29. Gabríel Snær Hallsson
- 45. Þór Andersen Willumsson

Þór Andersen byrjar hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri byrjar hjá Þór.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |