Fotbolti.net
04.08.26 - 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eiður Ben: Þegar liðið spilar svona finnst mér Viðar húsvörður geta staðið þarna

Auglýsing
Eiður Ben: Þegar liðið spilar svona finnst mér Viðar húsvörður geta staðið þarna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Alltaf gott að vinna en þetta var klárlega extra fyrir mig að vinna Breiðablik," sagði Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, eftir sigur á Breiðabliki í dag. Hann er fyrrum aðstoðarþjálfari Breiðabliks.

„Við upplifðum ógeðslega mikið, mikið af ferðalögum. Auðvitað þykir mér vænt um þennan hóp. Maður þekkir þá út og inn, það einfaldaði aðeins undirbúning."
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
Eiður stýrði Þórsliðinu í dag þar sem Sigurður Heiðar Höskuldsson tók út leikbann.

„Við reyndum að halda undirbúningnum svipuðum. Það var eitthvað sem Siggi vildi að ég tæki í aðdraganda leiksins sem hann er vanur að gera. Við vinnum þetta það mikið saman að þetta var ekkert öðruvísi nema auðvitað stend ég þarna en ekki Siggi. Þegar liðið spilar svona finnst mér Viðar húsvörður geta staðið þarna," sagði Eiður.

Eiður segir að Þórsliðið hafi komið Blikum á óvart.

„Ég held að við hefðum komið Breiðabliki að einhverju leyti á óvart. Ég held að þeir hafi ekki búist við okkur svona rólegum á boltann. Við vorum ótrúlega gíraðir, ferskir og orkumiklir. Ég held að það hafi ekkert með Breiðablik að gera. Við vorum klárir og trúðum á þetta."

Viðtalið við Eið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.