Fotbolti.net
04.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Enskt utandeildarlið hafnaði milljón punda tilboði frá Djurgarden

Enskt utandeildarlið hafnaði milljón punda tilboði frá Djurgarden
Canon

Mynd: Boreham Wood

Boreham Wood hefur hafnað tilboði sænska félagsins Djurgarden í framherjan Abdul Abdulmalik en tilboðið hljóðaði upp á eina milljón punda. Sky Sports greinir frá.
Boreham Wood, sem leikur í ensku utandeildinni, hafnaði öðru tilboði frá sænska félaginu á dögunum sem hljóðaði upp á 750 þúsund pund.

Abdulmalik var einn besti leikmaður utandeildarinnar á síðustu leiktíð.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hjálpaði liðinu að komast í úrslit umspilsins en hann skoraði og lagði upp í tapi gegn Rochdale í úrslitaleiknum.

Hann var valinn ungi leikmaður ársins eftir að hafa skorað 17 mörk og lagt upp 10 í öllum keppnum.

Djurgarden er í 3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 26 stig eftir 14 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.