Fotbolti.net
04.08.26 - 23:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fimm Íslendingalið áfram í danska bikarnum

Fimm Íslendingalið áfram í danska bikarnum
Canon

Mynd: Roskilde

Margir Íslendingar voru í eldínunni í danska bikarnum í dag.

Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Álaborg sem vann Holstebro 3-1. Þá spilaði Bjarni Aðalsteinsson fyrri hálfleikinn hjá Roskilde í 5-0 sigri á Handelsstandens.
Ólafur Dan Hjaltason var í byrjunarliði Aarhus Fremad sem vann 4-0 sigur á Ringkobing. Ingimar Arnar Kristjánsson gekk til liðs við Aarhus Fremad frá Þór á dögunum en hann er að kljást við meiðsli.

Hellerup, lærisveinar Antons Inga Leifssonar, unnu 5-1 sigur á Rudersdal. Adam Ingi Benediktsson sat á bekknum hjá AB í 2-1 sigri á Holbæk. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB.

Willum Þór Willumsson kom inn á undir lokin þegar NEC Nijmegen gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Olympiakos í forkeppni Meistaradeildarinnar. Liðin mætast í Hollandi eftir viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.