04.08.26 - 14:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Litla Ísland þarf að yfirstíga fleiri hindranir

Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jakobsson er sá dómari frá Íslandi sem hefur náð lengst á alþjóðlegum vettvangi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Szymon Marciniak dæmdi úrslitaleik HM 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dómararnir sem hafa dæmt úrslitaleiki HM síðustu ár koma ekki allir frá stórþjóðum. Pólverji dæmdi úrslitaleikinn í Katar árið 2022 og Slóveni flautaði úrslitaleikinn í Bandaríkjunum í sumar.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 1. ágúst á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

En gæti íslenskur dómari einn daginn staðið á miðjum vellinum þegar heimsmeistarar eru krýndir? Fótbolti.net velti þessu upp á dögunum og ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, Þórð Þorstein Þórðarson, sem hefur komið sterkur inn í dómgæsluna, og Kristinn Jakobsson, þann íslenska dómara sem hefur náð lengst á alþjóðavettvangi.
Að mati viðmælendanna snýst þetta ekki bara um hæfileika. Ísland þarf að glíma við ýmsar hindranir sem stærri fótboltaþjóðir þurfa ekki að hafa áhyggjur af.
„Það þarf ákveðna heppni. Við þurfum að vera með dómara sem eru tilbúnir að leggja 150 prósent á sig. Við höfum verið með dómara sem hafa lagt ansi mikið á sig. Svo þarf ég að vera duglegur að minna á okkur úti og koma okkur á framfæri. Það er pólitík í þessu eins og öllu öðru,“ segir Þóroddur.
Hann bendir á að aðstæður hér á landi geri verkefnið enn erfiðara.
„Við erum með litla deild, sumardeild. Við erum ekki með stóra leikvanga og dómararnir okkar eru ekki vanir að dæma fyrir miklum áhorfendafjölda. Það hjálpar okkur ekki."
Kristinn tekur undir það og nefnir eitt atriði sem hafi haft bein áhrif á hans eigin feril.
„Þegar þú kemur frá litlu landi þar sem spilað er sumartímabil, á meðan Evrópukeppnir fara fram yfir veturinn, þá var litið svo á að ég væri ekki í nægilega góðu taktísku leikformi. Það voru einfaldlega engir deildarleikir í gangi hér heima þegar riðlakeppni Meistaradeildarinnar fór af stað. Það hefur mikið að segja að íslenska deildin sé ekki í gangi á sama tíma og deildarkeppni Meistaradeildarinnar."
Kristinn segir jafnframt að íslenskir dómarar njóti ekki sömu stöðu innan alþjóðlega kerfisins og dómarar frá stærri fótboltaþjóðum.
„Í þessu, eins og öllu öðru, er það fyrst og fremst frammistaðan sem kemur manni áfram. Því miður njótum við, sem komum frá litla Íslandi, ekki sama utanaðkomandi stuðnings og mörg önnur lönd. Auðvitað spilar pólitíkin líka inn í þegar þú kemur frá svona litlu landi."
Þóroddur telur þó að staða Íslands hafi styrkst á undanförnum árum.
„Landsliðin okkar hjálpa okkur klárlega. Velgengni þeirra setur okkur á kortið, eins og við sáum á EM 2016 og HM 2018. Það skiptir máli. Íslensku félagsliðin eru líka að standa sig frábærlega í Evrópukeppnunum og það hjálpar okkur. Við höfum séð að við erum farin að fá fleiri og stærri verkefni en við fengum fyrir fimm árum síðan. Margt þarf að haldast í hendur en ég held að við séum á réttri leið," segir Þóroddur.
Einnig nefna þar VAR, myndbandsdómarakerfið, en meira um það síðar.

TENGT EFNI
Gæti Íslendingur dæmt úrslitaleik HM?