Fotbolti.net
04.08.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Manzambi verður ekki með Villa í Ofurbikarnum

Manzambi verður ekki með Villa í Ofurbikarnum
Canon

Mynd: Aston Villa

Johan Manzambi, nýr leikmaður Aston Villa, verður ekki með liðinu í evrópska Ofurbikarnum gegn PSG vegna meiðsla á hné samkvæmt heimildum The Athletic.

Það er óljóst hvenær hann snýr aftur en hann meiddist með svissneska landsliðsinu á HM í sumar.
Sóknarmaðurinn gekk til liðs við félagið fyrir tæplega 60 milljónir punda en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Hann er sagður vera staddur á Spáni í endurhæfingu.

Talið er að hann verði frá í nokkrar vikur og ljóst að hann verður ekki með í Ofurbikarnum í Salzburg þann 12. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.