04.08.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neymar: Er ekki að hugsa um að hætta

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Braslíumaðurinn Neymar er ekki farinn að hugsa um að leggja skóna á hilluna en þessi 34 ára sóknarmaður hefur verið að berjast við þrálát meiðsli undanfarin ár.
Neymar gekk til liðs við uppeldisfélagið sitt Santos í fyrra eftir misheppnaða dvöl hjá Al-Hilal þar sem meiðsli settu stórt strik í reikninginn. Hann kom aðeins við sögu í sjö leikjum frá 2023-2025.

Neymar var valinn í HM hóp Brasilíu í sumar en meiddist í aðdragandanum og kom aðeins við sögu í tveimur leikjum.
„Ég er ekki að hugsa um að hætta. Ég er samningsbundinn Santos þangað til í desember og ég vil gera mitt besta fyrir félagið. Eftir það mun ég skoða mína möguleika," sagði Neymar.
„Vera áfram, fara, leggja skóna á hilluna, halda áfram að spila, ég veit það ekki. Það er nægur tími fram að desember, við sjáum til."