04.08.26 - 12:07
Kári Snorrason
Rúrik vill bæta upp fyrir vandræðaleg fyrstu kynni við Beckham

Ánægður með fyrirsögnina 'The new David Beckham'.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég verð svo starstruck og veit ekkert hvað ég á að segja.“

Mynd: EPA

Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason rifjaði upp skemmtilega sögu frá því að hann heilsaði upp á David Beckham á veitingastað í Los Angeles í golfþættinum Seinni níu.
Þar átti Rúrik að velja heimsþekkta einstaklinga sem hann vildi spila golf með og valdi hann Beckham þar sem hann vildi bæta upp fyrir óþægileg fyrstu kynni.
Rúrik vakti sjálfur mikla athygli á HM 2018 og skaust fylgjendafjöldi hans á samfélagsmiðlinum Instagram upp úr öllu valdi, líkt og kannski flestum er kunnugt.

„Eftir heimsmeistaramótið var mynd af mér í einhverju blaði og við myndina stóð 'The new David Beckham'. Ég verð að viðurkenna það ég var helvíti ánægður með þessa fyrirsögn,“ sagði Rúrik og hló.
Rúrik sagðist líta mikið upp til Beckham og þegar hann sá hann á veitingastaðnum í Bandaríkjunum þurfti Rúrik að drekka í sig kjark áður en hann gekk að borði hans til að kynna sig.
„Ég fer yfir á borðið og byrja að ljúga að því að ég og Björgólfur Thor séum frábærir vinir. Ég þekki hann ekki neitt. Beckham svarar því: 'Já, frábært.' Ég verð svo starstruck og veit ekkert hvað ég á að segja, þannig að ég segi að það hafi verið talað um að ég væri the new David Beckham,“ sagði Rúrik og sá strax eftir því.
„Ég brotnaði svo saman inni í mér og hugsaði: Hvað er ég að gera? Mig langar svo til að leiðrétta þetta. Ég hef sofið illa í tvö ár yfir þessu. Þetta er hræðilegt,“ sagði Rúrik léttur og hafði hann mikinn húmor fyrir sjálfum sér.