Fotbolti.net
04.08.26 - 20:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Salah gerir tveggja ára samning við Trabzonspor

Salah gerir tveggja ára samning við Trabzonspor
Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah hefur fundið sér nýtt félag eftir að samningur hans við Liverpool rann út í sumar.

Trabzonspor í Tyrklandi hefur staðfest að samningsviðræður við Egyptann séu í fullum gangi en Fabrizio Romano greinir frá því að hann muni skrifa undir tveggja ára samning.
Salah var einnig í viðræðum við tyrkneska félagið Besiktas en nú er orðið ljóst að hann fer til Trabzonspor.

Salah er 34 ára gamall en átt stórkostlegan tíma hjá Liverpool. Hann skoraði 257 mörk í 442 leikjum og vann úrvalsdeildina tvisvar, Meistaradeildina tvisvar, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn einu sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.