Fotbolti.net
04.08.26 - 10:52
Kári Snorrason

Slæmt gengi Óskars Hrafns í Kaplakrika

Aldrei unnið sem þjálfari í Kaplakrika.

Aldrei unnið sem þjálfari í Kaplakrika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR heimsækir Kaplakrikavöll annað kvöld og mætir FH í 17. umferð Bestu deildarinnar.

Kaplakrikinn hefur reynst Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara KR, erfiður viðureignar en hann hefur aldrei stýrt liði til sigurs á vellinum.

Síðasti sigurleikur Óskars í Kaplakrika var fyrir 32 árum sem leikmaður KR þegar liðið vann 2-1 sigur á FH í Trópídeildinni sem þá var og hét. Logi Unnarson Jónsson og Þormóður Árni Egilsson skoruðu mörk KR-inga. Óskar fékk sjálfur gult spjald um miðbik síðari hálfleiks.

Óskar hefur verið í boðvanginum í Kaplakrika fimm sinnum. Hann hefur tapað tveimur leikjum og gert þrjú jafntefli.

Eftirminnilegt er 1-0 tapið gegn FH á Kaplakrikavelli í næstsíðustu umferð 2021, þegar Árni Vilhjálmsson skaut yfir úr vítaspyrnu undir lok leiks. Tapið kostaði Breiðablik toppsætið fyrir lokaumferðina og Víkingur endaði á að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

Óskar hefur þó haft tak á Jóhannesi Karli Guðjónssyni, þjálfara FH, en hann hefur unnið allar fimm viðureignir sínar gegn honum.
Gengi Óskars í Kaplakrika:
FH 2-2 KR, 23. apríl 2025
FH 2-2 Breiðablik, 10. júní 2023
FH 2-2 Breiðablik, 24. júlí 2022
FH 1-0 Breiðablik, 19. september 2021
FH 3-1 Breiðablik, 13. september 2020

Gengi Óskars gegn Jóa Kalla:
KR 4-2 FH, 27. apríl 2026
Breiðablik 2-1 ÍA, 16. ágúst 2021
ÍA 2-3 Breiðablik, 24. maí 2021
Breiðablik 5-3 ÍA, 26. júlí 2020
Breiðablik 7-1 ÍA, 28. febrúar 2020 (Lengjubikar)

Miðvikudagur 5. ágúst
Besta deild karla
18:00 Keflavík-KA (HS Orku völlurinn)
19:15 FH-KR (Kaplakrikavöllur)
Heimsækir Kaplakrika annað kvöld.

Heimsækir Kaplakrika annað kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH-ingar klæddust skrautlegum búningum í fyrri leik liðanna á tímabilinu.

FH-ingar klæddust skrautlegum búningum í fyrri leik liðanna á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar með tak á Jóa Kalla.

Óskar með tak á Jóa Kalla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR16+2235
4Breiðablik16+929
5Valur17-719
6ÍA17-819
7Keflavík16-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA16-815
11FH16-1113
12Þór16-2512
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.