Fotbolti.net
04.08.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stefán Teitur nýr fyrirliði Hannover

Stefán Teitur nýr fyrirliði Hannover
Canon

Mynd: Hannover 96

Stefán Teitur Þórðarson er orðinn nýr fyrirliði þýska liðsins Hannover, félagið greinir frá þessu á Instagram síðu sinnii.
Stefán gekk til liðs við Hannover frá Preston í janúar og er greinilega strax vel virtur. Hann hefur borið fyrirliðabandið á undirbúningstímabilinu.

„Heilt á litið í leikmannahópnum er Stefán Teitur einn þeirra sem ber af. Ekki aðeins hvað varðar hæfileika hans innan vallar heldur einnig með nærveru sinni og það hvernig hann leiðir með góðu fordæmi bæði innan sem utan vallar," sagði Christian Titz, þjálfari Hannover.

„Það er mikill heiður að vera fyrirliði þessa liðs og sögufræga félags. Hér hefur mér liðið eins og heima hjá mér frá upphafi," sagði Stefán Teitur.

Hannover spilar í B-deildinni í Þýskalandi og var hársbreidd frá því að komast upp í efstu deild á síðasta tímabili.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.