Fotbolti.net
04.08.26 - 23:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Veit ekki af hverju Þór varð fyrir valinu - „Komið svakalega á óvart”

Kevin Vazquez

Kevin Vazquez

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Spænski bakvörðurinn Kevin Vazquez gekk til liðs við Þór á dögunum. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í 1-0 sigri á Breiðabliki í kvöld en hann spilaði sem varnarsinnaður miðjumaður.

Vazquez er 33 ára en hann spilaði 68 leiki með Celta Vigo í La Liga, efstu deild á Spáni, nú síðast fyrir rúmum tveimur árum.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Breiðablik
Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, var spurður að því eftir leikinn í kvöld hvernig Vazquez væri kominn til Þórs.

„Hann hefur komið mér svakalega á óvart. Hann er ótrúlega hress og geggjaður gæi. Hann sagði okkur: 'Gefið mér tvær vikur og þá verð ég orðinn geggjaður'," sagði Eiður Ben.

„Ég veit ekkert af hverju hann valdi það að koma í Þór. Það eru margir búnir að spurja mig, ég get ekki svarað því. Kannski getur hann svarað því. Ég trúi því að hann hafi viljað prófa eitthvað nýtt. Kannski þarftu að finna gleðina, búinn að spila fyrir framan 50 þúsund manns endalaust. Kannski viltu prófa eitthvað allt öðruvísi. Búa sér til feril eftir ferilinn, ég átta mig ekki alveg á því. Ég hef ekki spurt hann að því, ég geri það eftir tímabilið."

Águst Eðvald Hlynsson var einnig spurður út í frammistöðu hans.

„Hann er búinn að mæta á tvær æfingar. Ég sá að síðasti leikurinn hans var í maí, hann var flottur og á örugglega eftir að verða betri og betri," sagði Ágúst.

Eiður Ben: Þegar liðið spilar svona finnst mér Viðar húsvörður geta staðið þarna

Ágúst Hlyns: Fannst við baka Blikana í fyrri hálfleik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.