Axel Óskar: Varnarleikurinn klárlega eitthvað sem við þurfum að laga
Auglýsing

Axel Óskar Andrésson

Mynd: Reading

Axel Óskar Andrésson

Mynd: Reading
Axel Óskar Andrésson, leikmaður íslenska U21 árs landsliðsins, var eðlilega svekktur eftir 3-2 tapið gegn Albaníu í dag en segir að liðið þurfi að bæta nokkra hluti.
„Þetta er mjög svekkjandi eins og þú segir. Það er margt sem við getum bætt en það er margt gott líka. Við náðum að skora tvö mörk en varnarleikurinn klárlega eitthvað sem við ætlum að laga fyrir næstu leiki,\" sagði Axel við Fótbolta.net.
Hann segir úrslitin vissulega svekkjandi en að liðið ætli ekki að hengja haus og koma öflugt í næstu leikjum.
„Við ætlum samt ekki að hengja haus núna, það er helling af leikjum eftir, upp með hausinn og áfram gekk eins og A-landsliðið segir.\"
Albanía var búið að leika tvo leiki í undankeppninni fyrir þennan leik en hann segir það ekki hafa skipt miklu máli. Íslenska liðið var búið að leika nokkra æfingaleiki.
„Við vorum búnir að spila fjóra æfingaleiki sjálfur þannig mér fannst það ekki vera afsökun fyrir okkur sem lið. Það er margt varnarlega sem við gátum gert betur, sendingar inn fyrir vörnina og passa upp á að vera þéttari en það er líka margt jákvætt.\"
„Þetta er mjög furðulegt skipulag en hvað getum við gert í því? Það sem við getum gert er að stíga upp núna. Við erum með ungt lið en þeir verða að líta á þetta eins og þeir séu gamlir,\" sagði hann í lokin.