Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 04. september 2018 10:00
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo með rúmlega þrefalt hærri laun en næsti maður
Cristiano Ronaldo er langlaunahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar, henn þénar rúmlega þrefalt meira en sá næst launahæsti.

Juventus keypti Ronaldo frá Real Madrid á 88 milljónir punda en portúgalska stórstjarnan hefur þó ekki náð að skora þegar þrjár umferðir eru búnar af tímabilinu.

Þessi 33 ára leikmaður fær 31 milljón evra í árslaun, eftir skatt. Þetta segir Gazzetta dello Sport.

Í öðru sæti er Gonzalo Higuain eftir að hafa gengið í raðir AC Milan frá Juventus. Ítalíumeistararnir borga best eins og sést á listanum.

Launahæstir á Ítalíu:
€31m Cristiano Ronado, Juventus
€9.5m Gonzalo Higuain, AC Milan
€7m Paulo Dybala, Juventus
€6.5 Miralem Pjanic, Juventus
€6m Douglas Costa, Juventus
€6m Ginaluigi Donnarumma, AC Milan
€5.5m Leonardo Bonucci, Juventus
€5m Emre Can, Juventus
€4.6m Lorenzo Insigne, Napoli
€4.5 Mauro Icardi, Inter Milan
€4.5 Edin Dzeko, Roma

Úrvalslið launahæstu leikmanna ítalska boltans:
Gianluigi Donnarumma, Milan (€6m)
Joao Cancelo, Juventus (€3m)
Leonardo Bonucci, Juventus (€5.5m)
Giorgio Chiellini, Juventus (€4m)
Kwadwo Asamoah, Inter Milan (€3m)
Emre Can, Juventus (€5m)
Miralem Pjanic, Juventus (€5m)
Douglas Costa, Juventus (€6m)
Paulo Dybala, Juventus (€7m)
Cristiano Ronaldo, Juventus (€31m)
Gonzalo Higuain, AC Milan (€9.5m)
Slapp
banner