Fotbolti.net
04.09.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Fór ekki til Liverpool en draumur hans getur enn ræst

Yankuba Minteh var orðaður við Liverpool í glugganum.

Yankuba Minteh var orðaður við Liverpool í glugganum.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, segir að draumur Yankuba Minteh geti enn orðið að veruleika í framtíðinni eftir að félagið hafnaði tilboðum Liverpool í lok félagaskiptagluggans.

Liverpool gerði 60 milljóna punda tilboð í þennan 22 ára gambíska kantmann en samkvæmt BBC vildi Brighton fá nálægt 70 milljónum.
England um helgina - Nýliðarnir mæta Liverpool í kvöld
TENGT EFNI

England um helgina - Nýliðarnir mæta Liverpool í kvöld

Minteh, sem kom frá Newcastle fyrir 30 milljónir punda árið 2024, spilar aðallega á hægri vængnum og hefur skorað 10 mörk og lagt upp 9 í 73 leikjum fyrir mávana.

„Ef allt liðið nær árangri og Yankuba lætur ljós sitt skína þá mun hann fá mikla athygli aftur og hann getur þá kannski uppfyllt draum sinn í næsta félagaskiptaglugga," segir Hurzeler.

„Hann hefur verið með okkur í tvö ár núna og áorkað miklu með strákunum. Þetta snýst líka um að hann skuldbindi sig núna og haldi áfram að leggja sig fram fyrir félagið. Við viljum ná árangri sem lið og þá getum við skinið sem einstaklingar. Ef við náum árangri saman mun athyglin beinast að einstökum leikmönnum, það sýnir sagan."

Brighton mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á laugardag klukkan 14.
Fór ekki til Liverpool en draumur hans getur enn ræst
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.