Fotbolti.net
04.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rangers sótti fjórtán nýja leikmenn

Rangers sótti fjórtán nýja leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Skoska stórveldið Rangers sótti 14 nýja leikmenn í sumarglugganum sem var að loka. Það er sami fjöldi og félagið fékk til liðs við sig í fyrra, en aðeins fjórir af þeim fjórtán eru ennþá hjá félaginu ári síðar.
Rangers var að ganga frá kaupum á Kevin Kelsy rétt fyrir lok sumargluggans í Skotlandi. Sá er 22 ára gamall og kemur til félagsins fyrir rétt rúmlega 10 milljónir evra.

Kelsy, sem er landsliðsmaður Venesúela, kemur úr röðum Portland Timbers í Bandaríkjunum og gerir fjögurra ára samning við Rangers, með möguleika á auka ári.

Kelsy skoraði 9 mörk í 37 leikjum með Shakhtar Donetsk frá 2022 til 2024 áður en hann var keyptur til Bandaríkjanna.

Badredine Bouanani er einnig kominn til félagsins frá Stuttgart. Bouanani er 21 árs landsliðsmaður Alsír sem kom að fjórum mörkum í 30 leikjum á síðustu leiktíð.

Bouanani kemur á lánssamningi með kaupmöguleika.
Rangers sótti fjórtán nýja leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.